Er tilgangur lífsins að vera garðálfur?

Hver hefði trúað því að ég væri garðálfur!!  Ég komst að því síðasta sumar að ég er með kolgræna fingur eins og má lesa í eldri færslum. 

Sumarið er alveg að bresta á og skaflinn sem ég taldi verða í garðinum fram í ágúst er við það að hverfa, þökk sé snjópikki mínu.  Fyrsta garðálfaverkið framkvæmdi ég í dag en ég réðist á runnana með heiftarlegum rafmagnsgarðklippum sem fengnar voru að láni hjá tengdó.  Ég klippti svo nokkrar greinar niður og setti í vatn í von um að ég fái rætur á þær því það á að reyna að fylla upp gloppurnar á runnanum.  Já, runninn fyrir framan húsið er jafn gloppóttur og loforð stjórnmálamanna.  Joyful

Það verður nóg að gera í garðinum í sumar, það þarf auðvitað að hreinsa runnana sem ég tætti í spað í dag en einnig er það á döfinni að sækja slatta af steinum til að klára steinabakkann góða, laga snúrustaurana, laga ruslatunnurnar sem eru í algjöru rusli, breyta og bæta útiarininn, jarðsetja fjögur jólatré og tvo hamstra sem létust í vetur og hafa verið í frosti í nokkra mánuði.  Útför þeirra félaga mun fara fram í kyrrþey og eru þeir sem vilja minnast Jónsa og Dúllilíusar bent á Hamstra- og pokarottuvinafélag Íslands.

Þetta verður svakalegt sumar, garðálfalega séð!!  Cool

Góðar stundir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður eins og mamma þín alltaf í garðum!!! :)

Diesel (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 01:33

2 identicon

Hahahahahaha... 

Daníel (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.