Er tilgangur lífsins að spekka I am legend?

I am legend með súper töffaranum Will Smith var spekkuð í gær.  Fyrir þá sem ekki vita þá er sögnin “að spekka”, nýtt, hipp og kúl orð yfir “að horfa” eða “að glápa á”.  Er myndinni var sullað í dvd spilarann voru væntingarnar miklar, Smith-arinn í hörkuformi þessa dagana og kókið vel kælt, því déskotans ísskápurinn er byrjaður að taka upp á því að frysta.
Er rétta stellingin var fundin í sófanum hófst spekkunin.  Ég er mikið fyrir að gera langa sögu stutta og það er engin breyting á því í þessari færslu, og til að gera langa sögu stutta þá varð ég fyrir vonbrigðum með þessa mynd.  Mér fannst Smith-arinn vera gera góða hluti leiklega séð og grafíkin er flott, en myndin í heild sinni var bara ekki nógu góð.

Ég gef þessari mynd ekki nema 2 stjörnu en hún fær engin hundabein að þessu sinni því Móses sofnaði í byrjun myndarinnar.

Góðar stundir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband