Er tilgangur lífsins að vera alltaf síðastur?

Þeir síðustu verða fyrstir.... þvílíkt bull sem þessi setning er.  Ég man aldrei eftir því að hafa verið fyrstur eftir að hafa verið síðastur, hef iðulega verið fyrstur í því að vera síðastur.  Þegar kemur að því að vera staddur einhvers staðar úti að borða með fjölda fólks þá virðist það ekki skipta neinu máli hvar ég treð afturendanum á mér niður, alltaf skal mitt borð verða síðast í röðinni.  GetLost

Ég lenti í þessu tvisvar sinnum í gær, alveg ótrúlegt.  Er þetta út af því að ég er rauðhærður... ég meina, kastaníubrúnhærður??  Wink 

Eftir rúmlega 29 ár þá er ég nú samt eiginlega byrjaður að venjast þessu, en ég skal segja ykkur það að þeir síðustu verða sko aldrei fyrstir!

Góðar stundir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég mútaði veislustjóranum DaníelVar bara ekkert að tala um það og leit betur út að maður að nafni Sigurður Ottó rétti upp hendina á næsta borði mjög klókt ekki satt

                                   kveðja Ægir Matargat
 

Ægir Eðvarðsson (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 22:20

2 identicon

Þú helvískur... 

Daníel (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband