Er tilgangur lífsins að fjalla um hægðir?

Einhverra hluta vegna virðist það aldrei réttur tími til að tala um hægðir, hvers vegna?  Mér finnst það algjör hægðarleikur að tala um hægðir, ég gerði meira að segja nokkrar tilraunir í dag til að brydda upp á þessari umræðu. Ég beið t.d. spenntur eftir góðri þögn í salnum sem ég vinn í og þegar hún kom stóð ég upp sperrtur og spurði salinn, “Hvenær er eiginlega rétti tíminn til að tala um hægðir?”  Eins bar ég þessa spurningu upp í kaffinu Grin  Til að gera stutta sögu styttri þá var hægðartregða á svörum frá kollegum mínum, svörin einfaldlega komu ekki.

Ég held að það sé bara að það sé akkúrat enginn tími réttur til þess að tala um hægðir, allavegana var það enginn hægðarleikur fyrir mig í dag að fá fólk til að dýfa sér í ofan í þessa umræðu.  Er fólk kannski með svo mikla hægðartregðu að það á hreinlega ekki hægt um vik að ræða svona hægðarlegt umræðuefni? 

Í framhaldi af þessu... af hverju tekur enginn mig alvarlega?  Woundering 

Jæja, ég ætla að fara að hafa það gott í hægðum mínum. 

Góðar hægðir... meina stundir Tounge

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: svavs

hæglega sagt en gert, keep on going með tilgang lífsins, þú ert æði! allavega skriftin þín man

svavs, 26.10.2007 kl. 02:02

2 identicon

Takk kærlega fyrir, gaman að heyra að einhver hafi gaman af vitleysunni í manni

Daníel (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.