Er tilgangur lífsins að þrífa upp hundakúk?

Ég þoli ekki fólk sem leyfir hundunum sínum að skíta hvar sem er og þrífur ekki eftir þá. Angry  Þetta lið setur svartan blett á okkur annars heiðvirðu hundaeigendur.  Það liggur við að maður þurfi að henda skónum sínum eftir að maður er búinn að sökkva skónum sínum upp að ökkla í hundakúk, þvílík lykt!!  Ef maður er hundaeigandi þá er tilgangur lífsins m.a. að þrífa upp hundakúk eftir hundinn sinn, og á köldum vetrardögum er það bara helvíti næs að finna hitann af nýkreistum hundakúk á höndunum... ég þoli bara ekki þegar pokinn er götóttur að neðan.  Pinch

Góðar stundir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband