Er tilgangur lífsins að ganga í bleiku?

Í dag er fjólu-lilla-bleikur dagur í vinnunni, og auðvitað skellti maður sér í eitthvað bleikt og lillað.  Mér líður yfirleitt bara nokkuð vel í bleiku þrátt fyrir að akkúrat þessi litasamsetning sé kannski ekki alveg nógu góð hjá mér.  Ég hefði alveg geta þegið nokkur ráð frá Heiðar nokkrum snyrtir í morgun þegar ég snérist á hæl og hnakka, grútsyfjaður og á sprellanum, í leit að rétta dressinu fyrir daginn í fataherberginu. 

 

Mér finnst metro-sexual gaurar margir hverjir vera bara nokkuð svalir.  Til að komast aðeins nær þessum metro-sexualisma þá hef ég nú þegar verslað nokkra stelpulega-litaða boli  til að setja í hið margrómaða fataherbergi og svo er það sem skiptir að mér finnst öllu máli í þessu, það er trefill.  Ég tel að grunnurinn að því að vera metro-sexual sé að eiga trefil.  Hef samt heyrt að treflar séu orðnir out núna!  Hvað gerir maður í þessum málum??  Woundering

 

Góðar stundir 

  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband