Er tilgangur lífsins að vera fífl?

Ég er haldinn þeim skemmtilega eiginleika að vera fífl.  Eitt af einkennum mínum sem fífls er t.d. að tuða um það sama allan daginn.  Devil  Í dag var mér illt í hendinni eftir gríðarlega brútal blóðprufu sem ég þjáðist, en samt ekki, í gegnum í morgun.  Mér er svo ekki vel við nálar að hálfa væri hellingur, það leið ekki yfir mig en ég gat engan veginn horft á nálarkvikindið smjúga inn í æðina og fylgst með blóðinu tappað í þar til gerð ílát.  Ílátin voru það mörg að hjúkrunarfræðingnum hlýtur að hafa fundist hún vinna við tappa á flöskur í Carlsberg bruggverksmiðjunni.  Pouty

En já, ég mér var auðvitað illt í hendinni eftir þessa lífsreynslu og í amstri dagsins fengu sessunautar mínir að heyra það afspyrnu reglulega, mér til mikils yndisauka.  Reyndar fékk ég smá af mínu meðali til baka því sessuneytan (nýyrði yfir kvenkyns sessunaut) mín söng lagið úr myndaflokknum Jesús og Jósefína, sem mér finnst alveg afbrigðilega leiðinlegt.  Afspyrnu skemmtilegur og líflegur dagur í dag, fann reyndar ekki jólaskapið frekar en fyrri daginn, það hlýtur að fara að skila sér.

Meira af eigin fífla einkennum er m.a. að misskilja allt, segja fáránlegar sögur af sjálfum mér sem allir halda að sé lygi en er það kannski í raun og veru ekki, notkun skemmtilegra orða með viðeigandi áherslum eins og t.d. sam-kuntu-hús, hegðun sem á í besta lagi heima á barnaheimili, svo fátt eitt sé nefnt.

Góðir hálsar, mér er ennþá illt í hendinni!! Tounge

Góðar stundir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú átt alla mína samúð... í tvær mínútur... Ég hata nálar

Jónína Dúadóttir, 15.12.2007 kl. 00:04

2 identicon

Ó þakka þér fyrir mín kæra 

Daníel (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 21:55

3 identicon

Vorkenni þér ekkert.......heppinn að geta ekki orðið óléttur og með rhesus mínus blóð!! þá er endalaust verið að taka blóð.....en það er bara vont að láta stinga þetta venst

Dóra (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband