Er tilgangur lífsins að fremja stílbrot?

Í miðju amstri dagsins í gær stóð ég upp til að koma blóðflæðinu aftur af stað í löppunum á mér og náði mér í kaffibolla.  Þar sem ég stóð við gluggann og glápti út í rigninguna og rokið sá ég hvar ein gömul ludda kemur labbandi úr Samkaup Úrval, þar sem bæ þe vei úrvalið er ekki neitt, með eitt stykki plastpoka á höfðinu til að passa hárið.  Það sem vakti athygli mína var það var ekki þetta æðislega höfuðfat sem frúin var með, heldur var hún í þessu skaðræðis veðri í kvartbuxum og inniskóm. Shocking   Mér fannst þetta vera frekar kostuleg sjón en þvílíkt og annað eins stílbrot hefur ekki sést síðan að Icey flokkurinn var og hét.

Ef þið sjáið mig fremja álíka glæpsamlegt stílbrot er aldur færist yfir þá vinsamlegast handtakið mig og færið mig til næsta stílista.

Góðar stundir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband